Áhugavert
Nýr fílsungi
Heimasætan
13.10.2008 21:10:34 / Fíllinn

Rán um hábjartann dag

hellú
Hjartahlý amma fór í Hagkaup til þess að kaupa afmælisgjöf handa tveggja ára barnabarni sínu. Fyrir valinu urðu falleg hundanærföt enda barnabarnið sérlegur áhugamaður um hunda. Þegar heim var komið hugðist amman kroppa verðmiðan af enda ekki til siðs að gefa verðmerktar gjafir þá komst sú gamla að því að hún hefði verið rænd því undir verðmiðanum sem sýndi 1299 króna kaupverð var annar miði sem sýndi gamla verðið 699 krónur.Það er naumast að verðið hefur hækkað þessa fáu daga sem fallegu hundanærfötin biðu eftir hjartahlýrri ömmu sem hægt væri að ræna í skjóli kreppunar. Meðfylgjandi er mynd af miðanum. Forvígismenn Hagkaupa ættu að skammast sín, en sennilega kunna þeir það ekki. knús

sönnunargagn A
Guðný Erla skrifaði
Senda þetta strax á okursíðu Dr.Gunna. Þar er önnur hver kvörtun tengd Hagkaupum. Ég skoða þessa síðu reglula. Sparaði t.d. 1500 kr á 2 mánaða vítamínskammti heimilisins. P.s. það var verið að mæla með fyrirtæki á Akureyri svo þetta er ekki bara Reykjavík.
Gyða skrifaði
í blöðin með þetta
Sesselja skrifaði
Þetta er ekkert nýtt hjá Hagkaupum og ég veit það fyrir víst að þegar auglýst er 24% afsláttur eða virðisaukalaus tilboð þá er búið að "leika" sér svona með verðið. Ég er nánast hætt að versla í Hagkaup út af þessu svindli þar sem ég sjálf hef lent í að plokka verðin þeirra.
Fyrrum verslunarmaður skrifaði
Eiga menn s.s. að borga með vörunni af því krónan tók dýfu milli afhendingardags á vörunni og gjalddaga á reikningnum ?
Fíllinn skrifaði
dýfan hefur ekki verði 50% er það? Ef að eitthvað vit hefði verið í þessum verslunarmanni sem og öðrum ættu þeir kannski að staðgreiða vörurnar sínar í stað þess að skýla sér á bak við slæman gjaldmiðil. Gef skít í svona viðskiptahætti

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Leitarbox