|
|
06.10.2009 10:41:52 / Fíllinn
Á góðum degi í framtíðinni ...
Steingrímur Sigfússon var dauður og kominn til himna þar sem hann hitti
Lykla-Pétur.
Lykla-Pétur varð svolítið vandaræðalegur: „Eh, velkominn,“ sagði hann loks.
„Þakka þér fyrir,“ sagði Steingrímur, „ég vissi að ég mundi enda hér“.
- „Nja,“ sagði Pétur , „þú hefur lifað sæmilega frómu lífi, eða þannig, svo við
vildum gjarnan hafa þig hér en því eru ekki allir sammála. Þú ert umdeildur
maður og það hafa fleiri áhuga á þér en við hér í himnaríki. Við urðum að halda
fund með djöflinum þar sem þetta var rætt og það endaði með því að við gerðum
samning við hann.“
„Samning!“ Hrópaði Steingrímur og var sýnilega brugðið.
„Það er nú ekki alslæmt,“ sagði Pétur, „en djöfullinn sagðist nú þegar hafa
flesta vini þína svo við sömdum um að þú eyddir einum sólarhring í helvíti og
öðrum hér hjá okkur í himnaríki og svo velur þú sjálfur hvar þú dvelur um aldur
og eilífð.
Steingrímur maldaði svolítið í móinn en samningur er jú samningur svo Pétur
vísaði honum á lyftuna, kvaddi hann og sagðist sjá hann eftir sólarhring.
Steingrímur ýtti á hnapp merktan „helvíti“ í lyftunni og seig svo langt, langt
niður á við þar til lyftan stoppaði við kolsvarta hurð. Þegar dyrnar opnuðust
stóð djöfullinn sjálfur fyrir innan. „Gamli vinur, vertu hjartanlega velkominn,
gakktu í bæinn,“ sagði djöfsi.
Steingrímur fór inn og við honum blasti risastór golfvöllur. Margir af hans
gömlu flokksbræðrum léku golf á vellinum eða stóðu í smáhópum og töluðu saman.
Golfvöllurinn var fullkominn. Það var heitt í lofti og út um allt voru léttklæddar,
snoppufríðar djöflastelpur sem færðu mönnum bjór og aðra kalda drykki.
Steingrímur lék golf allan daginn og um kvöldið bauð Svavar Gestsson, sem hafði
dáið nokkru áður, honum í „gúrme“grill (hafði sem sagt grætt um daginn og
grillað um kvöldið) ásamt Indriða, Álfheiði og fleiri góðum vinum með öllu
góðgæti sem hugsast gat. Fáum sögum fer af því hvernig Steingrímur eyddi
nóttinni en sólarhringurinn í helvíti var fljótur að líða og morguninn eftir
var honum vísað á lyftuna á ný.
Þegar Steingrímur kom aftur til himnaríkis var hann efins um ágæti þess staðar
en það var samt sem áður tekið vel á móti honum. Hann var klæddur í englaföt og
fengin harpa til að leika á. Hann eyddi deginum með því að ganga um milli
skýjanna, hlustaði á fagran fuglasöng og borðaði ferska ávexti. Hann fékk
reyndar í magann af ávöxtunum og það pirraði hann að sjá Davíð og Þorgerði
sitja saman á skýi og leika á hörpur af mikilli innlifun.
Um kvöldið kom Pétur. „Nú ertu búinn að dvelja heilan sólarhring í helvíti og
heilan dag hér í himnaríki. Ertu kannski búinn að ákveða þig?“ Spurði
postulinn.
„Hmm,“ sagði Steingrímur, ég átti nú kannski ekki von á því en ég held að ég
velji helvíti, þrátt fyrir allt. Það er heppilegasti staðurinn fyrir mig.“
Andlitið datt af Pétri og hann reyndi hvað hann gat að fá Steingrím ofan af
ákvörðun sinni. En Steingrímur var harðákveðinn.
Á ný fór Steingrímur með lyftunni niður í helvíti og djöfullinn tók aftur á
móti honum. Hann kippti Steingrími inn en þar var þá allt öðru vísi umhorfs en
daginn áður. Brennisteinsfnykinn lagði um allt og skerandi sársaukavein
flokksbræðra hans og vina fylltu loftið. „En hvar er golfvöllurinn?“ Spurði
Steingrímur. „Og djöflastelpurnar, bjórinn og grillið?
- “Ah,“ sagði djöfullinn, „þú skilur þetta mann best, í gær var
kostningabaráttan í fullum gangi. En nú ertu búinn að kjósa!“
»
14.09.2009 11:07:46 / Fíllinn
Hó Þá er allt að detta í grámygluna eftir góða helgi. Bind miklar vonir við góðar fréttir streymi inn þessa vikuna maður má ekki missa trúna. Fór í fína óvissuferð í boði frú Perlu álaugardaginn þar sem barist var í fjölda greina og liggja úrslit ekki enn fyrir slík var baráttan. Discodansinn var magnaður og og er ég glaður yfir því að sleppa við meiriháttar meiðsli slíkir voru taktarnir, kalla mig framvegis í einrúmi hr Travolta. Meiddist hins vegar lítilsháttar á hendi skömmu eftir blíðlegar strokur á afturenda í keilukeppnini frá eldri konu sem stödd var í námunda þegar ég fékk eðalstein á kaf í hendina í fagnaðarlátunum eftir einu fellu dagsins. náðum að hleypa a.m.k tveimur barnafmælum upp í loft með drykkju og erótískum leikjum á útivistarsvæðinu í Kjarnaskógi keppt var í lostafullu kókosbolluáti og fjölda annara greina. og voru kynginaraðferðir yngri keppandans í kókosbolluátinu mun markvissari. Um kvöldið var síðann hræi hent á grillið út í sveit, dans stiginn og ættjarðarlög sungin. Snildarferð, verð örugglega nokkra daga að ná mér, er samt bara að spá í að hvíla mig bara betur þegar ég er orðinn gamall. Hugheilar ps.
Einhver maður sagði, að það ætti aldrei að hleypa skáta að
heima, því það væri pottþétt að hann rataði ekki heim...þetta hafi verið svo
algengt , að það hafi verið stofnuð hjálparsveit skáta />
»
10.09.2009 16:48:22 / Fíllinn
Hó Tók þá tímamóta ákvörðun að fjárfesta í nýjum rakvélar blöðum síða þegar ég keypti voru 8 stykki á 1900 sem var fokdýrt fullur af bjartsýni hjólaði ég af stað til að gera langa ferð stutta þá voru blöðin ekki til í Bónus eins og sjá mátti á loðnum afgreiðslumanninum sem bar sig aumlega yfir skorti á rakvélarblöðum sömu sögu var að segja af Hagkaup enginn blöð greinilegt að ekki er hugsað um nýrakaða menn þar á bænum enda Jóhannes verið með skegg svo lengi sem elstu menn muna og Jón Ásgeir litli bónus varla með skeggrót bara sítt að aftan. Samkaup átti hins vegar nóg af blöðum enda ekki nema von 4 stykki á 3000 hvað er í gangi ? ekki nema von að nóg sé til. Hröklaðist þaðan út og fór í Netto sem gefur hefur sig út fyrir gott vöruverð úff þar kostuðu blöðin líka 3000 4 stykki. Ég hrökklaðist því út hlammaði mér á fákinn og hjólaði heim þrátt fyrir all mikla loftmótstöðu í loðnu andlitinu. Hugheilar Ps.
Magga sat á biðstofu
læknis áamt annarri konu og þær tóku tal saman. „Við hjónin erum búin að reyna
að eignast barn í mörg ár en ekkert gerist.“ sagði Magga, „Ég býst við að okkur
sé ekki ætlað að eignast börn.“ />
„Ég hugsaði akkúrat
svona,“ sagði hin konan. „En svo breyttist allt. Þess vegna er ég hér. Ég er
nefnilega barnshafandi og komin þrjá mánuði á leið.“ />
„Þú verður að segja mér
hvernig þú fórst að,“ sagði Magga. />
„Ég fór til andalæknis,“ sagði hún. />
„En ég er búin að reyna það,“ sagði
Magga. „Við Jónas fórum til andalæknis í næst um því ár og það hafði engin
áhrif.“ />
Hin konan brosti og hvíslaði, „Næst
skaltu fara ein, vinan.“ />
»
09.09.2009 15:29:27 / Fíllinn
Bjarni Ármansson er ábyrgari maður heldur en ég hann ætlar ekki að borga 800 kúlur af því að það er óábyrgt gangvart konuni segir sagan. Þess í stað ætla ég og hluti af þjóðinni sem erum algjörlega óábyrg að borga þetta fyrir hann. Skildi hann þá ekki í staðinn sleppa fram af sér beislinu og borgar þessar kúlur sem ég skulda næst þegar honum langar að gera eitthvað verulega óábyrgt ? Maðurinn er mannvitsbrekka svo ekki sé meira sagt. Sá ömurlegi atburður varð í n-sex laust upp úr hádegi í dag að Kári steig ofan á dauða mús í forstofuni niðri það varð Kára til lífs að músin var látin þegar atburðurinn átti sér stað. Músin er talin hafa látist samstundis eftir árekstur við heimilisköttinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Kári hefur fengið viðeigandi áfallahjálp og heilsast vel.
Ps. tapast hefur grá læða sem svarar nafninu Jóhanna. Síðast sást til hennar bak við Steingrím skattaskalla á Austurvelli. Ekkert atriði er að hún finnist, hún hefur hvort eð er ekki gert neitt af viti þetta árið. Litli maðurinn
»
08.09.2009 11:31:30 / Fíllinn
Fór á hausthátíð í skólanum um síðustu helgi verðað viðurkenna að það var að stórum hluta vegna þess að ég var svangur og klukkan var að smella í 12:00 og ég sá setninguna grillaðar pylsur á auglýsinguni. Frú Perla var löngu farinn með ungahópinn því vippaði ég mér á hjólið hennar með pedölunum mínum og þaut af stað á ofsaferð. Mætti á svæði og þvefað upp grilllyktina og smellti mér í röðina, garnirnar gauluð i takt við skrækina í börnunum innan við afgreiðsluborðið stóðu bólugrafnir unglingspiltar og afgreiddu pylsurnar rétt í þann mund sem röðin kom að mér byrjar minn afgreiðslustrákur að klóra sér í pungnum með taktföstum hreyfingum ég fölnaði afsakaði mig og tók stefnuna á næstu pungrottu þrátt fyrir litla matarlist. lít á björtu hliðarnar drengurinn var með latexhanska og þarf ekki að þvo sér um hendurnar á eftir. Hugheilar P.s
Prestur var að messa yfir þéttsetinni kirkju þegar
skrattinn birtist allt í einu. Hann ógnaði söfnuðinum og allir flúðu úr
kirkjunni, enma einn gamall maður. Þegar kirkjan var orðin tóm þá fór skrattinn
til gamla mannsins og spurði: “Ertu ekki hræddur við mig, ég er illmennskan
endurholdguð, hræðilegasta skepna í öllum heimi.” Gamli maðurinn svaraði: “Þú
hræðir mig nú ekki, ég er búinn að vera giftur konu í 45 ár sem er örugglega
systir þín.”
»
07.09.2009 13:05:10 / Fíllinn
Daginn góðir hálsar hef tekið þá ákvörðun að byrja að blogga aftur eftir langt hlé. það er fínt að byrja húsverkin á því þar sem að skortur er á öðrum verkum í augnablikinu. Það hefur lítið gerst í sumar annað en að skattaskallinn er að drepa Íslenska alþýðu ásamt Jóhönnu sem skyndilega er ekki einu sinni vinur litla mansins. Í raun og veru fer hún fram í kyrrþey held samt örugglega að hún sé enn forsætisráðherfa. Hef reyndar ákveðið það láta þessa óstjórn ekki hafa áhrif á mig andlega en erfitt að komast hjá því þegar allt hækkar dag frá degi. langar mest að fara úr landi. Það myndi reyndar bæta ástandið verulega ef maður hefði vinnu, sumarvinnuni lauk á föstudaginn og því er allt í lausu lofti það er svo sem nóg að gera á stóru heimili en það bara gefur ekki alveg nóg í aðra hönd þó maður sé að vinna með ómetanlegann fjársjóð. Er að skríða á stað með prógram vetrarins í uppistandinu vonandi verður nóg að gera í því. Jæja bind svo miklar vonir við að þið verðið dugleg að kommenta leiðist að skrifa og skrifa án þess að fá viðbrögð. Hugheilar P.s
Og af hverju eru trukkabílstjórar með nafnið sitt
í framrúðunni. Er það til þess að þeir finni bíllinn sinn aftur þegar þeir koma
út úr Staðarskála með fitu og raps á bunbunnim eftir kódiletturnar ? />
»
06.05.2009 13:17:36 / Fíllinn
Það er mikill hátíðisdagur í dag því samkvæmt fjölmiðlum er megrunarlausi dagurinn í dag. Hef beðið eftir þessum degi í ár fullur af innri losta og eftirvæntingu. Ákvað að halda upp á daginn með því að fara í sjoppu og panta mér einn sveittann Bufftartar með miklu beikoni og í tilefni dagsins bað ég hátt og skírt um að öllu grænmeti yrði sleppt. Skömmu síðar fékk ég poka hljóp hægt út í bíl og keyrði áleiðis heim og raulaði gamla slagara af tilhlökkun einni saman. Þefaði af pokanum á leiðinni inn hlammaði mér við borði reif matinn upp og tók stórann bita en þá hrundi dagurinn, út úr báðum munnvikum mínum stóðu kálblöð. Megrunarlausi dagurinn breyttist því á svipstundu í venjulegan hollan miðvikudag borðaði restina af graslegna beikonborgaranum mínum og hugsaði: Vonandi lendi ég á betur innréttaðri afgreiðslukonu á næsta megrunarlausa degi eftir ár.
»
07.04.2009 14:49:43 / Fíllinn
Hó Nú er svo komið að stjórnvöld eru önnum kafinn við að gera lítið sem vitlegt getur talist. Allur tími fer í að þrefa um breytingar á stjórnarskránni. Svo hefur ekkert breyst ef einhver erlendur aðili bendir á eitthvað sem betur mætti fara þá er hann í besta falli talinn létt geggjaður en sennilega þó mikið veikur einstaklingur sem er bara öfundsjúkur út hvað allt er æðislegt og í góðum höndum hér. Fékk smjörþefinn af þessu þegar að ég fór í apótekiðí gær til þess að sækja nýjann skammt af Paried sem er einstaklega gott magalyf. Þá lá við að mér yrði hent út aftur öfugum með lyfseðilinn. Spurt var hvort ég hefði ekki vitað af nýju reglugerðinni það væri nefnilega hætt að greiða umrætt lyf niður og framvegis yrði bara eitt magalyf greitt niður. Ég gæti svo sem fengið Paried en skammturinn myndi kosta rétt tæpann 20.000 kall. ég taldi upp á 3463 inn í mér og á þessu augnabliki hefði ég svo sannarlega þurft á einni Paried að halda til þess að róa magasýrurnar. Hvernig í andskotanum átti ég að vita að Marteinn Mosdal væri orðinn ráðgjafi hjá ríkisstjórnini sem framvegis verður bara með eitt ríkis magalyf. Ég þarf því að skunda aftur á fund læknis til þess að ræða þetta nýja ríkismagalyf og véla hann jafnvel til þess að skrifa upp á skammt svona til þess að halda magasýrunum frá kokinu. Það er annars ekki skrýtið að maður sé kominn með upp í kok af þessu bulli öllu. Hugheilar
»
18.03.2009 10:16:51 / Fíllinn
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga heimilum í landinu náðu hámarki í gær þegar að félagsmálaráðherfan kynnti aðgerðir sem innihalda blátt bann við nektardansi. Þetta mun örugglega bæta til muna fjárhag flestra heimila í landinu því allir vita hversu miklum fjármunum húsbændur þessa lands eyða í þann munað að horfa slefandi á sílikonfyllta konubarma líða í fallegum listdansi um sviðið. Það er greinilega lítið að gera á stjórnarheimilinu ef það er tími til að ráðast gegn slíkri listsköpum. En hagur heimilana er svo sannarlega númer eitt, eða hvað? Svo var líka kynnt eitthvað átak í kynjaðri hagstjórn sem á víst að taka upp eftir ár en eins og alþjóð veit hefur hagstjórnin verið mjög úrkynjuð síðustu ár. Næsta skref hlýtur að vera að banna með öllu sambúð fólks af sama kyni það hlýtur að þurfa að vera 1. karl og 1. kona í hverju sambandi annað er kynjamisrétti. Hugheilar
»
12.03.2009 13:49:42 / Fíllinn
Hér sit ég og hugsa minn gang. Félagi minn í gönguhópnum, Frestað vegna veðurs'' hefur tekið upp nýja lífshætti og er komin á afeitrunar fæði næsta mánuðinn og borðar nú ekkert glúten, engin sykur, enga mjólk, ekkert áfengi, ekkert svínakjöt og engin e efni. þetta minnir á svæsið atriði úr Dagvaktinni. Ég veit ekki hvernig ég á að tækla þetta mál. Ef ég færi í svona hreinsun yrði ég gerður upptækur. Tökum dæmi: Ekkert glúten: veit ekki hvað það er veit bara að Georg Bjarnfreðarson borðar það ekki. Enginn sykur: Hvernig ætti ég þá að komast í gegn um streð dagsinns ? svo myndi kóksala í hverfisbúðinn nánast líða undir lok með skelfilegum afleiðingum. Enginn mjólk: ég yrði að hætta að heimsækja aldraða móðir mína á laugardögum og þiggja af henni fullann disk af mjólkurgraut og slátur að auki. Ómetanlegt Ekkert áfengi: Þetta svarar sér nánast sjálft. Þó ég sé að mestu reglumaður fyrir hádegi gæti ég ekki hugsað mér að sleppa guðaveigunum veit ekki betur en Jesú hafi setið að sumbli flesta daga með strákunum og ekki var það sopinn sem gekk frá honum. Svo þykir mér vænt um hverfispöbbinn og vil hafa hann sem lengst það er líka ekki hægt að horfa á Liverpoolleiki án þess að fá sér í stórutána og þá er ég bara að hugsa um að halda taugunum í lagi. Heilbrigðiskerfið þolir ekki fleiri taugasjúklinga. Ekkert svínakjöt: Nú er mér öllum lokið, Perla mín býr til bestu svínarif í heimi þetta er upp áhalds maturinn minn og dregur fram í mér villimanninn við matarborðið svo sjaldan sem það má. Svo er svínkjöt ódýrasta kjötið sem þú færð nú á síðustu og verstu. E-efni: Veit ekki mikið um þau nema að e-pillur drepa. Niðurstaðan: Fíllinn sér sér því miður ekki fært að svo stöddu að taka upp lifnaðarhætti kærar nágranna konu minnar. En óska henni alls hins besta og bendi á í leiðinni að ég á svínarif í kistuni og kalt kók í ískápnu ásamt kældu hvítvíni ef eitthvað skildi henda á leið hennar. hugheilar ps. má ekki gefa karlinum einn kaldann?
»
10.03.2009 13:43:11 / Fíllinn
Jæja Þá er húskarlinn sestur við skriftir. Það er skrýtið að vera heimavinnandi, maður hangir suma daga og nennir litlu, aðra daga er maður að springa af dugnaði finnst mér en allir koma þeir og fara mis skemmtilegir. Segji reyndar aðspurður að ég sé í besta starfi í heimi að ala upp börnin mín (þoli samt ekki þegar er spurt hvernig gengur þér að finna vinnu ? það er 16000 í sömu röð og ég halló) Uppeldið skilar reyndar litlu í augnablikinu fjárhagslega, Reyndar er tap á því eins og er en ég lít á uppeldið sem langtíma fjárfestingu. Maður á samt erfitt með að trúa því að Ari nr.5 sem borðaði slatta af klósettpappír á milli mála í morgun muni annast mig á efri árum. Kannski verður hann illa launaður pappírstætari hjá hinu opinbera þegar hann verður stór og þá verður ekkert svigrúm fyrir pabba gamla. Ég hugga mig við þá hugsun að ég á fjögur börn til góða ef hann klikkar. Sagði ekki Björgúlfur Guðmundsson að maður ætti ekki að vera með öll egginn í sömu körfunni. Hugheilar  Slóðin eftir Ara
»
09.03.2009 08:52:06 / Fíllinn
Daginn Það ætlar ekkert að hætta að snjóa, ég þurti að hendast út í birtingu til þess að moka frá óðalinu svo konan kæmist í vinnuna. Ef hún hefði ekki gert það hefði haft ófyrirsjáanleg afleiðingar fyrir heimilið ég hefði ekki náð að einbeita mér sem skildi að heimilisstörfunum og uppeldinu á fílsungunum. Hafði þó mestar áhyggjur af heimilisstörfunum eða þannig, er nefnilega húsbóndi á mínu heimili frá 8:00 til 16:05 fyrir utan það ræð ég ekki alveg jafn miklu. Hlakka samt alltaf jafn mikið til að fá hana heim. Lenti í mikilli lífsreynslu á fimmtudaginn þegar að tölvudruslan geispaði goluni hinu meginn við götuna þar sem hún var stödd í heimsókn, lífgunartilraunir báru ekki árangur svo allt var straujað og sett upp á nýtt og nú er hún eins og ný fjögra ára gömul tölva, róleg en yfirveguð og kemst þangað fyrir rest. Ekkert merkilegt tapaðist held ég þökk sé hinum stór fína nágranna mínum Skara á móti sem fór fimum höndum um þá gömlu.Aðgerðin tók 2 daga, þessir dagar voru lengi að líða alveg ótrúleg hvað maður verður háður þessum tölvum. Gerði reyndar óvenju mikið á meðan. Jæja best að hætta er svo þreyttur í höndunum eftir snjómoksturinn. Hugheilar
»
04.03.2009 17:14:53 / Fíllinn
Morgungönguni var aflýst í morgun vegna veðurs og ófærðar á fjallvegum eins var snjóflóðahætta fyrir vestan ef göngutúrinn yrði í lengra lagi. Morginum var því eytt í frekar lítið enda framtaksemin ekki í hámarki þessa dagana. Fór síðan að versla fyrir hirðirinn seinnipartinn er sérfræðingur í því þó ég segi sjálfur frá. Tók nokkrar mannlífsmyndir í Glerártorgi þar voru frekar fáir, sá smákrakka bera leikföng út úr leikfangabúðini með enska nafninu og háu verðunum án þess að afgreiðslupilturinn tæki eftir því enda sá önnum kafinn við að tala við mömmu sína í símanum. Fráhryndandi kona kallaði manninn sinn aumingja og tveir gamlir karlar stungu saman nefjum á bekk voru sennilega að ræða það nýjasta í jarðarförum för sem ekki verður frestað vegna efnahagsástandsins það þarf engan gjaldeyri að hafa í innanklæðaveski fyrir hana. Þreytuleg hjón með hóp af börnum skunduðu inn hún skoðaði skart en hann reyndi að hafa auga með krakkahópnum sem tvístraðist í allar áttir svo hann lét sig hverfa inn í næstu verslun er örugglega að smala í þessum skrifuðum. Skoðaði nýju tölvulínuna frá Appel lét mig dreyma og hélt af stað heim. Hugheilar
»
03.03.2009 15:45:38 / Fíllinn
Í gær vaknaði ég upp við vondann draum þegar ég komst að því að ég væri orðinn atvinnulaus formlega þ.e.a.s ég fékk fyrstu greiðsluna af atvinnuleysisbótunum enga smá upphæð 83,465 sem mér er ætlað að lifa af næsta mánuðinn. Hjarta mitt fylltist gleði sem fljótlega varð að ógleði þegar ég fór að spá í hvernig ég ætti að verja upphæðini og komst að því að til þess að geta lifað af henni hefði hún helst þurft að vera helmingi hærri föst útgjöld eru nefnilega 110,000 á mánuði. Svo þarf að metta marga munna. Mér er andskotans sama eins og fávitadúettinum sem kom mér í þessa stöðu ef einhverjir vilja nöfn og kennitölur þá spyrjið bara. Þeir vinna báðir á sama stað. Allir tala um að maður eigi að vera jákvæður og brosa með hjartanum, það eru nú takmörk fyrir því hversu mikið má leggja á hjartað. Ég lít bara raunsætt á málið nú er maður búinn að vera heima síðan í byrjun desember og reynt að bera höfuðið hátt, en smá saman einangrast maður samt félagslega, fer lítið út úr húsi hangir í tölvunni sem er að hruni komin(hugsa með hryllingi til þess þegar að það gerist) Ég sinni reyndar heimilsstörfunum af myndarskap braut meira að segja saman tuskur um daginn, fer á hverfispöbbinn bjartsýnn en kem dapur heim af því að Liverpool vinnur sjaldan leiki og spilar leiðinlega fótbolta og maður hugsar af hverju er ég atvinnulaus en ekki hr Benitez sem ber ábyrgð á þeim bænum. Ekki má hætta án þess að minnast á morgungönguna með konu nágrannans. Það er nefnilega þannig að ég hef aðgang að konu nágrannans sem er vissulega mikil búbót og á hún heiður skilið fyrir að draga Fíl á eftir sér um bæinn þveran og endilangan dag eftir dag meðan að makarnir okkar þræla fyrir saltinu í grautinn. Já lífið er yndislegt Hugheilar P.s endilega commenta
»
25.01.2009 14:58:09 / Fíllinn
Halló Ísland og nágrenni Þá er komið að bloggi mánaðrins hef svo sem verið lengi á leiðinni að stinga niður putta. Það var tvöfaldur brennivín í kók hjá Kiwanismönnum á Siglufirði sem opnaði hug minn upp á gátt, Hef ekki smakkað þann drykk að ráði í nokkur ár eða síðan að ég var fullra 17 ára. Ég var staddur þar um helgina að halda fræðsluerindi um breskar vændiskonur, Skagfirsk partý og skúringatækni Siglfirskra húsmæðra. Ég vil þakka kærlega fyrir höfðinglegar móttökur, Siglfirðingar er svo sannarlega höfðingjar heim að sækja nema einn, hann var svo fullur að hann helti vatni á ný pressaðar sparibuxurnar mínar vegna reikuls göngulags og almennar neikvæðni. Það kom þó ekki að sök slíkt var slagviðrið utan dyra og blotnuðu þær mikið á leið heim til tengdó en ég lá hjá henni um nóttina. Ég fór á mótmælafund í vikunni söng nokkur ættjarðarlög horfði á 3 vorubretti brenna, fór svo heim og faðmaði fílahirðirinn og hlustaði á hvítann all ljótann kött breima fyrir utan húsið alla nóttina því honum langaði svo að hafa ástarmök við læðuna okkar sem gaf ekki færi á sér að þessu sinni. Annars hefur mánuðurinn verið frekar tilþrifalítill gigg um um helgar og heimilsstörfin á virkum dögum verst hvað þau eru illa launuð fjárhagslega. Er reyndar með hugmyndir sem eru að detta á blað þesa dagana og verða vonandi framkvæmdar á færibandi. Það er svo aldrei að vita nema að maður bloggi aftur fljótlega. Hugheilar
»
Síður: 1 2 3 ... 25
|
|